Þarftu öflugt vefumsjónarkerfi?Ef þú ert að leita að uppsetningu á vefsíðu þar sem þú hefur fullt vald yfir efni, myndum og efnistökum vefsíðunnar eftir að hún er komin á netið þá erum við með lausnina. Frjálsa vefumsjónarkerfið frá Drupal er sérlega aðgengilegt, kraftmikið og auðvelt í notkun og gefur notandanum bæði frelsi og svigrúm.
Þarftu svona vefsíðu?Þarftu vefsíðu sem sendir fréttabréf og heldur utanum póstlista? Vefsíðu sem leyfir gestum að tjá sig gegnum spjallþræði, heimilar athugasemdir við blogg og leyfir fólki að skrá sig inn á atburði með ákveðinni dagsetningu? Þarftu ef til vill vefsíðu með formi sem gestir fylla út og vefsíðan sendir þér í tölvupóst þegar formið er klárað. Hvað með aðgangskerfi sem þú skilgreinir og ákveður hver má sjá hvað? Vefsíðu með fréttakerfi, myndaalbúmi og skoðanakönnunum? Þarftu litla eða stóra en öfluga vefsíðu sem leyfir samskipti og þú stjórnar með þínu eigin vefumjónarkerfi? Ef svo er þá þarftu Drupal vefsíðu frá Emstrum.
Kjósir þú að nota hið öfluga vefumsjónarkerfi frá Drupal, sem m.a. er það kerfi sem Háskóli Íslands notar fyrir sína vefsíðu ásamt Stúdentaráði H.Í. og stöðugt stækkandi hópi félaga, fyrirtækja og einstaklinga, ert þú að nota vefumsjónarkerfi sem er frítt og byggir á frjálsum hugbúnaði. Þú þarft því hvorki að greiða stofngjald né mánaðargjald en tekur í notkun eitt öflugasta vefumsjónarkerfið á markaðnum í dag. Vefumsjónarkerfi sem tugþúsundir nota fyrir vefsíður sem fá milljónir heimsókna á hverjum einasta degi.
Vefhýsing kr. 900 pr. mán.Þeir viðskiptavinir okkar sem kjósa að taka upp Drupal sem vefumsjónarkerfi fá hýsingu á kr. 900 pr. mán. Þessi vefhýsing er með því allra ódýrasta sem þekkist á vefsíðumarkaðnum í dag. Flestir sem bjóða vefhýsingu í dag eru í kringum kr. 2.000 – 3.000 á mánuði. Þetta gjald er eina gjaldið sem þú greiðir mánaðarlega eftir að vefsíðan er komin á netið. Eftir það ertu engum háður og greiðir eðlilegt gjald fyrir hýsingu, ekkert fyrir vefumsjónarkerfið og gerir breytingar á vefsíðunni þinni þegar eitthvað þarf að laga eða einhverju þarf að breyta. Bingó!