Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

FERÐAÞJÓNUSTA

Vefsíður með bókunarkerfi fyrir margs konar ferðaþjónustu - skoða nánar

Blogg

Margir náðu skemmtilegum landslagsmyndum

Gosið var tignarlegt

Sem áhugaljósmyndari þótti mér ákaflega heillandi að fara austur að gosinu og taka myndir. Ég stóð sjálfa mig að því að fylgjast meira með veðri og veðurspám en ég hafði gert áður. Allt til að sigta út hvernig ég gæti náð betri myndum af gosinu. Þegar færi gafst kastaði ég frá mér hlustunni og öllum tækjum læknisins og settist upp í jeppann minn og ók austur. Tók mér stöðu á Emstrum og beið eftir tækifæri til að taka mynd. Read more »

Bæði gosin hafa heillað marga

Gosið var tignarlegt

Margir Íslendingar virðast í augum útlendinga ákaflega hugaðir þegar kemur að eldgosum. Í stað þess að koma sér sem lengst í burtu frá gosinu virtust við hafa óseðjandi áhuga á að komast mjög nálægt gígnum sjálfum. Þetta átti sérstaklega við þegar gosið á Fimmvörðuhálsi var í gangi. Allir vildu komast að gosinu og sjá eldspýjurnar og eldkeilurnar. Read more »

Miklar breytingar á Gígjökli

Gígjökull hefur tekið miklum breytingum á undanförum árum

Á undanförum áratugum hafa orðið stórstígar breytingar á Gígjökli, skriðjöklinum sem kemur úr Eyjafjallajökli norðanverðum og margir þekkja frá leiðinni inn í Þórsmörk. Frá því að saltstjóri fór fyrst í Þórsmörk árið 1974 hefur hann tekið margar myndir af Gígjökli. Á fyrstu myndinni má sjá að hálfgert klettabelti úr ís stígur úr lóninu við rætur skriðjökulsins. Smám saman hverfur þetta og skriðjökullinn minnkar. Read more »

Misjafnlega erfitt að fást við afleiðingar gossins

Gosið hefur gjarna sést vel frá Þorvaldseyri

Þátt fyrir að gosið sé á köflum heillandi þegar það er skoðað úr fjarlægð þá eru augljóslega ákveðnar skuggahliðar sem erfitt er að fást við.  Í gegnum síðustu vikur hefur gosmökkurinn lagst yfir svæðið undir Eyjafjöllum.  Á því svæði eru nokkur af blómlegustu búum landsins.  Svæðið er eitt af glæsilegustu landbúnaðarsvæðum landsins.  Þar hefur verið búskapur á mörgum jörðum.  Bæði fjárbúskapur og mjölkurframleiðsla. 
Read more »

Gosið getur verið áhugavert til að skoða

Gosið hefur gjarna sést vel frá Þorvaldseyri

Eftir að gosið hófst í Eyjafjallajökli hafa margir lagt leið sína að gosstöðunum.  Áður höfðu margir lagt leið sína að gosinu á Fimmvörðuhálsi.  Bæði gosin eru áhugaverður atburður hvort á sinn hátt. Það góða við gosið á Fimmvörðuhálsi var hversu auvelt var að komast að gosstöðvunum sjálfum. M.a. Read more »

Syndicate content