Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Bæði gosin hafa heillað marga

Margir Íslendingar virðast í augum útlendinga ákaflega hugaðir þegar kemur að eldgosum. Í stað þess að koma sér sem lengst í burtu frá gosinu virtust við hafa óseðjandi áhuga á að komast mjög nálægt gígnum sjálfum. Þetta átti sérstaklega við þegar gosið á Fimmvörðuhálsi var í gangi. Allir vildu komast að gosinu og sjá eldspýjurnar og eldkeilurnar. Frá þessum tíma eru til aldeilis frábærar ljósmyndir sem sýnir fólk nánast við hliðina á miklum eldsumbrotum.
Líklega treystum við jarðfræðingunum okkar svona vel. Treystum því að þeir segi okkur hvenær hætta er á ferðum og hvunær ekki. Ekki er nein ástæða til að vantreysta þeim eða draga í efa að þeir viti hvenær við getum verið nálægt gosi og hvenær ekki. Að minst kosti voru þessar ferðir okkar allra sem fórum að gosinu á Fimmvörðuhálsi og einnig ferðir austur á Emstrur til að skoða gosið í Eyjafjallajökli alveg stórskemmtilegar.
Saltstjóri lét ekki sitt eftir liggja. Fór bæði gangandi upp á Mórinsheiði þegar gosið stóð sem hæst og síðan á fjallabílnum yfir Mýrdalsjökul. Skoðaði gosið sem sagt báðum megin við Heljarkamb. Báðar voru ferðirnar stórkostleg upplifun í tignarlegu veðri kringum páskana 2010. Augljóslega var þessi hlut gosana meiri háttar upplifun fyrir okkur öll.
- saltstjori's blog
- Login or register to post comments
Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi

Comments
Fór á gosstöðvarnar og skemmti mér vel
Ég var ein af þeim sem fór á gosstöðvarnar og get tekið undir þá skoðun að bæði var gosið tilkomumikið og skemmtunin óborganleg. Allir í okkar hópi voru sammála um að þeir hafi sjáldan séð aðra eins uppákomu.
Sjónarspilið var óraunverulegt þegar eldurinn réðist til atlögu við jökulinn. Þarna spilaði allt saman, eldur, ís, vatn og jörðin sjálf. Sjaldgæfur atburður í lífi hvers og eins. Ekki undarlegt að margir hafi vilja fara þangað.