Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Margir náðu skemmtilegum landslagsmyndum

Sem áhugaljósmyndari þótti mér ákaflega heillandi að fara austur að gosinu og taka myndir. Ég stóð sjálfa mig að því að fylgjast meira með veðri og veðurspám en ég hafði gert áður. Allt til að sigta út hvernig ég gæti náð betri myndum af gosinu. Þegar færi gafst kastaði ég frá mér hlustunni og öllum tækjum læknisins og settist upp í jeppann minn og ók austur. Tók mér stöðu á Emstrum og beið eftir tækifæri til að taka mynd.
Þetta var ekki sérlega auðvelt þar sem skýjahulan settist stunum yfir fjallið og yfir eldgosið þannig að ekkert sást. Þá þurfti ég að bíða og bíða og vona að hulunni yrði aftur lyft af svo að gosið og mökkurinn kæmi í ljós. Eftir langa bið gerðist þetta síðan með reglulegu millibili. Þá var hægt að smella og smella á myndavélina.
Ég set hér eina mynd sem ég er mjög ánægð með. Þetta er mynd af eldgosinu í Eyjafjallajökli og sýnir hversu tignarlegur gosmökkurinn gat verið. Hann var hlut af landslaginu og gaf okkur áhugaljósmyndurum sem og alvöru ljósmyndurum skemmtilegt tækifæri til að taka myndir sem sannarlega vöktu athygli á vefsíðum eins og flickr.
- vinnandikona's blog
- Login or register to post comments
Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi

Comments
Er ekki komin tími til að hætta að hugsa um gosið
Ég er einn af þeim sem fór á gosstöðvarnar þegar túristagosið var uppá sitt besta á Fimmvörðuhálsi. Ég viðurkenni að ég var dálitið ákafur og fór fimm sinnum á gosstöðvarnar og tók mikið af myndum.Núna er svo komið eftir allar hörmungarnar fyrir bændur og ferðaiðnaðinn að mín vegna mætti þetta blessaða gos fara að hætta. Ég legg til að við setjum þetta gos í bakssýnispegilinn.
Skil hvað þú átt við
Ég er sammála athugasemd þinni um gosið. Eins flott og það er búið að vera og eins gaman og það hefur verið að fara austur og taka myndir þá má þessu alveg fara að ljúka. Ég var einmitt að hugsa það sama þegar ég tók þessa mynd á leiðinni heim um daginn.