Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Miklar breytingar á Gígjökli

Á undanförum áratugum hafa orðið stórstígar breytingar á Gígjökli, skriðjöklinum sem kemur úr Eyjafjallajökli norðanverðum og margir þekkja frá leiðinni inn í Þórsmörk. Frá því að saltstjóri fór fyrst í Þórsmörk árið 1974 hefur hann tekið margar myndir af Gígjökli. Á fyrstu myndinni má sjá að hálfgert klettabelti úr ís stígur úr lóninu við rætur skriðjökulsins. Smám saman hverfur þetta og skriðjökullinn minnkar. Breytingarnar áttu sér stað án nokkurrar aðstoðar eldsumbrota. Núna á undanförnum dögum haf breytingarnar hins vegar verið stórstígar og varla sést fyrir enda á þeim.
Ekki aðeins er lónið horfið heldur hefur skriðjökullinn allur brotnað og holast af völdum kvikunnar sem öðru hverju er að herja á efri hlutann. Þetta er mjög vel hægt að sjá þegar ekið er inn fyrir Þórólfsfell upp Emstrur. Haldi gosið áfram með þessum hætti má eins gera ráð fyrir að í stað skriðjökulsins komi hraunrennsli þarna niður.
Má búast við að það verði stórfengleg sjón að sjá glóandi kvikuna renna fram af fjallinu á mun meiri hraða þar sem áður var hægfara skriðjökull. Allt hlut af mögnuðum náttúruhamförum sem við erum að verða vitni að þessa dagana.
- saltstjori's blog
- Login or register to post comments
Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi
