Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

EINSTAKLINGAR

Þú stjórnar vefsíðu sem kemur þér á framfæri. Skiptir um texta og myndir.

Aðgangsstýringakerfi sem opnar og lokar aðgangi

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Ef hægt er að segja að einher einn hluti vefsíðunnar sé hjarta hennar þá er það aðgangsstýringarkerfið. Með Drupal kerfinu fylgir öflugt aðgangsstýringarkefi sem auðvelt er að aðlaga að þínum þörfum með því að skilgreina notendur, hlutverk, heimildir og aðrar aðgangsreglur. Kerfi sem gerir vefsíðueigandanum kleift að loka ákveðnum hluta vefsíðunnar fyrir ókunnugum og óæskilegum gestum og heimila síðan þeim sem eru vinir að skoða margt sem aðrir fá ekki að sjá.

Opin og lokuð vefsíða

Ef að vefsíðan þín á að vera lokuð að hluta eru fá kefri öflugri en Drupal. Þetta á ekki aðins við um þær heimildir sem hægt er að veita sérhverjum notanda, eða ákveðnum hópi notenda, heldur á þetta einnig við um þá tengla og þær síður innan vefsíðunnar sem ekki eiga að vera aðgengilegar öllum. Sem dæmi má nefna að stundum getur verið nausynlegt fyrir félög að birta fundargerðir stjórnar án þess að þær séu opna öllum almenningi. Með aðgangsstjórnuarkerfinu er hægt að koma því þannig fyrir að þegar félagsmaður skráir sig inn sér hann fundargerðirnar. Sé hann ekki innskráður sér hann þær ekki. Einnig er hægt að setja aðgangskerfið þannig upp að félagsmenn sjá eitt, stjórnin annað og almenningur allt annað svo dæmi séu nefnd. Í innskráningarboxinu hér til hliðar í hægri dálknum getur þú skráð þin inn, sótt um aðgang eða beðið um nýtt lykilorð.

Hlutverk og aðgangsreglur

Allur aðgangur að vefsíðunni er skilgreindur með hlutverkum. T.d.e hægt að búa til hlutverk i félagi eins og stjórn, félagsmenn, þátttakendur í spjallþráðum, bloggarar, stjórnendur myndaalbúms o.s.frv. Allt eftir því hvaða hlutverki félagsmenn gegna og hvað þeir meiga gera. Agangsstjórnun getur líka þjónað því hlutverki að skilgreina hver á að sjá um hvað. T.d. geta allir verið með svipaðan aðgang að allri vefsíðunni. Hins vegar eru umsjónarmenn ákveðinna atriða á síðunni með aðeins öðruvísi skráningu. Sá sem sér um að setja inn myndir hefur heimild til að setja inn myndir í myndaalbúm. Sá sem sér um spjallþræðina hefur heimild til að setja inn nýja flokka.

Heimildir til að breyta og fella niður

Þegar félagsmaður setur inn blogg, athugsemd eða tjáir sig á spjallþræði er mikilvægt að hann geti gert leiðréttingar á eigin efni. Þetta er mjög auðvelt í Drupal aðgangsstýringarkefinu. Þannig gæti félagsmaður sem hefur sett inn athugasemd sem hann vill leiðrétta skráð sig inn á síðuna og gert sínar leiðréttingar. Ef hann hefur skrifað eitthvað sem hann sér efitr getur hann skráð sig inn og tekið efnið út.

Auðvelt að breyta heimildum

Hvernig sem heimildir og hlutverk á vefsíðunni eru skilgreind í upphafi er mjög auðvelt fyrir þig að gera breytingar eftir að vefsíðan er komin út á netið. Þú getur t.d. ákveðið að tiltekinn hópur hafi heimildir til að skrifa og leiðrétta eigin athugasemdir eða eigin skrif á spjallþræði en ákveðið síðar að þeir hafi hvorki heimild til að fella niður það sem þeir skrifuðu né að gera leiðréttingu. Allt eru þetta stillingaratriði sem auðvelt er að laga og breyta í Drupal

Hafðu markvissa stjórn á þeim sem koma inn á vefsíðuna þína með aðgangsstjórnunarkerfinu frá Drupal.

Emstrur - Aðgangsstjórnunarkerfi