Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Auglýsingar sem geta skapað vefsíðunni tekjur
Mörg félagssamtök, góðgerðastofnanir, fyrirtæki og einstaklingar eru í aðstöðu til að selja auglýsingar inn á vefsíðuna og hafa þannig tekjur af vefsíðunni. Annars vegar vegna aðila sem vilja styrkja starfsemina og hins vegna aðila sem vilja auglýsa vegna útbreiðslu vefsíðunnar. Með þessum hætti skapa auglýsingarnar tekjur fyrir eiganda vefsíðunnar. Verðlagningin fer síðan eftir fjölda heimsókna.
Skipt um auglýsingar
Í Drupal er hægt að setja upp reiti í dálka síðunnar, hægra- eða vinstra megin, sem eru eingöngu ætlaðir í auglýsingar. Auðvelt er að skipta um auglýsingar gegnum vefumsjónarkerfið. Fyrirfram er hægt að ákveða að auglýsandi skili auglýsingunni í ákveðnu formi og af ákveðinni stærð, rétt eins og gert er á mbl.is eða visir.is. Auglýsingarnar lifa síða í ákveðin tíma samkvæmt taxta og fá síðan nýjar að þeim tíma loknum er skipt um auglýsingar.
Af margs konar formi
Með Drupal vefumsjónarkerfinu er auðvelt að setja inn auglýsingar hvort sem þær eru myndir, hreyfimyndir (flash skrá) eða texti. Með gjaldfrjálsa vefumsjónarkerfinu frá Drupal getur þú skapað þér þínar eigin tekjur ef þú ert með vefsíðu sem hefur mikla útbreiðslu.
Auglýsingar á ákveðnum síðum
Einnig er hægt að ákveða að auglýsingar birtist á forsíðu eingöngu eða á öllum síðum vefsíðunnar undir öllum tenglum. Þá geta verið auglýsingar sem aðeins birtast á tiltekinni síðu. Að sama skapi er hægt að útiloka að auglýsingar birtist á síðu þar sem ekki er viðeigandi að hafa auglýsingar að mati eiganda síðunna. Allt eftir þínu höfði og þínum reglum.
Auglýsingar
Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi

