Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

EINSTAKLINGAR

Þú stjórnar vefsíðu sem kemur þér á framfæri. Skiptir um texta og myndir.

Bloggkerfi til að skapa jákvætt viðmót og hafa skoðanir

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Því miður hefur blogg á vefsíðum fengið á sig fremur neikvæðan stimpil. Ástæðan er einkum sú að á mörgum vefsíðum hefur bloggið orðið vettvangur nöldurs og leiðinda. Bloggið er hins vegar sérstaklega áhugaverð aðferð til að gera vefsíðuna lífleg og skapa athyglisverða umræðu um málefni sem tengjast fyrirtækinu eða félaginu. Bloggið er líka líklegt til að vekja áhuga leitarvéla á síðunni þinni og í alla staði til þess fallið að gera hana skemmtilega.

Blogg sem hægt er að stilla og stjórna

Emstrur nota Drupal „Open Source“ vefumsjónarkerfið til að setja upp vefsíður. Með Drupal kemur öflugt bloggkerfi sem gefur notandanum margvíslega möguleika í uppsetningu og stjórnun bloggsins. Til dæmis er hægt að tengja bloggið við aðgangstýringarkerfið og getur stjórnandi bloggsins þannig ráðið hver fær að lesa bloggið og hver fær að koma með athugasemdir. Einnig getur vefstjórinn ákveðið að fara yfir athugasemdir annarra áður en hann hleypir þeim út á síðuna sína. Allar þessar stillingar gera það að verkum að hægt er að gera bloggið áhugavert og líflegt án þess að sleppa öllum lausum sem bara vilja nöldra og hafa lítið að segja.

Nýr jákvæður samskiptamáti

Bloggið þarf að tengjast hinum nýja samskiptamáta samtímans og hafa burði til að byggja sig inn á öfluga samskiptavefi eins og facebook og twitter og aðra fjölsótta vefi. Bloggið er tæki til að draga athygli að þér og þínu fyrirtæki og skapa þínu vörumerki sérstöðu. Draga athygli að þér og fyrirtækinu þínu og því sem fyrirtækið og þú hafið að bjóða. Bloggið getur líka verið athyglisverð leið fyrir félög til að segja frá atburðum og atvikum og gefa félagsmönnum leyfi til að koma með athugasemdir. Eins og fram kemur í umfjöllun okkar um leitarvélar þá eru þær í dag þungamiðjan í allri markaðssetningu og athygli. Ef þú ætlar virkilega að koma þér á framfæri þarftu að nota margar leiðir á netinu. Eina af þeim leiðum sem eflir stöðu þína á netinu og í leitarvélum er einmitt blogg.

Prufublogg okkar um gosin

Til þess að sýna hvernig bloggið virkar höfum við hér hjá Emstrum sett upp blogg sem fjallar um gosin á Fimmvörðuhálsi og gosið í Eyjafjallajökli. Náttúruhamfarir sem fóru ekki framhjá neinum og margir gáfu sér tíma til að skoða gosin. Inn á bloggið höfum við sett nokkrar færslur og athugasemdir. Þá höfum við sett upp lista með nýjustu færslunum hér í dálkinn hægra megin. Þannig fær notandinn gott yfirlit yfir það helsta sem er að gerast á blogginu. Stillingar okkar eru þannig að allir geta séð færslurnar og athugasemdirnar. Hins vegar er ekki hægt að koma með athugasemdir nema þú sért innskráður. Viljir þú koma með athugasemd getur þú skráð þig inn og sagt frá þinni reynslu af gosinu og einnig prófað hvað þér finnst um bloggkerfið frá Drupal.

Bloggið getur líka verið uppbyggjandi og áhugaverður vettvangur til að skapa jákvæða ímýnd

Emstrur - það getur líka verið gaman að blogga