Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

EINSTAKLINGAR

Þú stjórnar vefsíðu sem kemur þér á framfæri. Skiptir um texta og myndir.

Emstrur vefsíðugerð - Margra ára reynsla - Stöðug aukning

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Vefsíðufyrirtækið Emstrur var stofnað árið 2005 og hefur frá þeim tíma sett upp vefsíður fyrir margs konar starfsemi. Sjávarútvegsfyrirtæki, gistingu, félagasamtök, listamenn, hönnuði, lækna, innflutningsfyrirtæki, sérfræðinga, ferðaþjónustufyrirtæki, félög, fasteignafélög, verðbréfafyrirtæki, fjármálafyrirtæki, framleiðslufyrirtæki, fasteignasölur, verslanir, verktaka, samstarfsverkefni, laxveiðiá, tónlistarmenn, skóla, rannsóknastofnanir og söfn svo dæmi séu nefnd.

Fjölbreytni hjá okkar viðskiptavinum

Emstrur hafa bæði sett upp einfaldar heimasíður fyrir einstaklinga og flóknar upplýsinga- og samskiptasíður fyrir félög, stofnanir og fyrirtæki -og allt þar á milli. Kröfurnar eru mismunandi og hlutverk heimasíðunnar mismunandi hjá hverjum og einum. Sem dæmi má nefna einfalda heimasíðu sem kynnir gistingu í einu húsi. Á hinn bóginn má nefna viðamikla samskipta- og sölusíðu sem er með umfangsmiklum upplýsingum um vörur og jafnvel verslunarkerfi. Einnig vefsíður með margs konar samskiptamáta eins og facebook hjöppum, fréttabréfum, póstlisum og bloggkerfum. Í okkar heimasíðugerð með Drupal eru fáar hindranir á framsetningu og uppbyggingu heimasíðunnar.

Áhersla á vandaða kóðun

Emstrur er vefsíðufyrirtæki sem leggur áherslu á athyglisverða hönnun, rétta HTML kóðun og CSS stýringu í samræmi við alþjóðlega staðla og reglur. Enda eru þetta lykilatriði þegar kemur að gengi og möguleikum sérhverrar vefsíðu gagnvart leitarvélum. Ef hönnun og uppsetning er ekki í lagi á vefsíðan litla möguleika á netinu og leitrvélar vilja lítið við hana kannast.

Vefsíðugerð og Drupal

Til þess að breikka möguleika viðskiptavina okkar bjóða Emstrur núna vefsíður sem eru settar upp í Drupal frjálsa hugbúnaðinum með öflugu vefumsjónarkerfi. Hér fara saman vönduð kóðun, miklir möguleikar, uppsetning fyrir leitarvélar, ókeypis vefumsjónarkerfi og kraftmiklar vefsíður. Emstrur og Drupal vinna saman að heildstæðri lausn fyrir þig og þínar þarfir.

Komdu með í hóp þeirra fjölmörgu sem nýta sér sérþekkingu okkar á hinu öfluga og notendavæna vefumsjónarkerfi frá Drupal.

Emstrur vefsíðugerð