Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Félagatal sem félagarnir uppfæra sjálfir

Ef þú ert í forsvari fyrir félag eða félagasamtök ættir þú að skoða hvernig félagatalið og félagaskráin virkar með notandakerfinu og aðgangsstýringarkerfinu frá Drupal. Með því a gera notanda- og aðgangsstýringarkerfið að þungamiðju félagtalsins ertu í raun að færa uppfærslu félagatalsins til félagana sjálfra. Ekki þarf lengur að taka á mót símtölum, tölvupósti eða öðrum skilaboðum þegar félagi breytir um síma, heimilisfang eða netfang, hann gerir það sjálfur. Heimasíðugerð sem vinnur fyrir þitt félag. Heimasíðugerð sem auðveldar þér að auka afköst félagsins.
Augljós þægindi
Með því að tvinna saman notendur, aðgangsstýringarkerfið og félagatalið er hægt að spara umtalsverða vinnu auk þess sem félagatalið endurspeglar alltaf réttar upplýsingar. Sérhver félagsmaður sér sjálfur um sínar upplýsingar. Þegar hann skráir sig inn á hann alltaf möguleika á að fara í sína skráningu og gera leiðréttingar. Það er því ekki við neinn að sakast ef hann sér ekki um að viðhalda réttum upplýsingum.
Upplýsingar í félagatali
Þegar þú setur upp félagatalið í byrjun getur þú ákveðið hvaða upplýsingar notandinn, félaginn, á að skrá. Flestir vilja hafa upplýsingar um nafn, heimili, netfang o.s.frv. Það er hins vegar lítið mál að bæta við upplýsingarnar sem félagsmaður verður að skrá inn þegar hann skráir sig í fyrsta skipti. T.d. getur verið eðlilegt í fagfélagi að biðja um útskriftarár, í skólafélagi hvenær viðkomandi hóf nám o.s.frv. Allt upplýsingar sem síðar er auðvelt að uppfæra af einstaklingum sjálfum.
Gerið félagnan virka
Til þess að gera félagatalið enn athyglisverðar má tvinna aðagan hvers og eins saman við margt annað sem gerir vefsíðuna áhugaverða fyrir félagsmenn. T.d. getur hver og einn haft sína gestabók þar sem hann skiptist á upplýsingum við aðra félagsmenn, hægt er að heimila hverjum og einum að setja inn mynd af sér, taka þátt í spjallþráðum sem eingöngu eru ætlaðir félagsmönnum o.s.frv. Möguleikarnir til að nýta vefsíðuna sem samskiptatæki eru nánast óendanlegir í Drupal
Láttu félagsmenn sjálfa halda utanum sínar upplýsingar á áhugaverðri vefsíðu fyri félagið ykkar

Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi
