Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

EINSTAKLINGAR

Þú stjórnar vefsíðu sem kemur þér á framfæri. Skiptir um texta og myndir.

Fréttabréf sem halda öllum upplýstum og áhugasömum

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Á tímum sparnaðar og hagkvæmni er mikilvægt að finna árangursríkar og ódýrar leiðir í viðskiptum. Eitt af mörgum tækjum vefsíðunnar sem þú getur nýtt þér til að ná árangri í markaðssetningu með hagkvæmum hætti eru fréttabréf. Með því að safna viðskiptavinum þínum á póstlista sem þú tengir við fréttabréfið getur þú sent þeim mikilvæg skilaboð á mikilvægum augnablikum. Með fréttabréfinu frá Emstrum og Drupal verður þetta auðveldara en að senda tölvupóst eða skrifa bréf.

Fréttabréf og tilkynningar svo að allir megi vera með á nótunum

Stundum getur verið nauðsynlegt að senda félagsmönnum í félagi eða samtökum eða viðskiptavinum fyrirtækja tilkynningu með stuttum fyrirvara. T.d. ef þú ákveður útsölu, afslátt eða sérstök tilboð í fyrirtæki eða mikilvægan fund í miðri kjarabaráttu í félagi. Þá er hægt að nota fréttabréf og póstlista til að senda stutta frétt eða tilkynningu. Þú getur síðan haft sérstakt útlit á fréttabréfinu eftir því hvað er í gangi..T.d. fréttabréf með mynd þegar þú kynnir nýja vöru eða einfalt fréttabréf með texta þegar þú sendir tilkynningu varðandi kjarabaráttu. Vertu í sambandi við félagsmenn eða viðskiptavininn og minntu á þig með því að nota stjórntæki vefsíðunnar viðskiptum þínum og félögum til framdráttar. Vertu hugmyndaríkur á tímum sparnaðar og hagkvæmni.

Skrifaðu þegar andinn er yfir þér og sendu seinna

Oft tekur tíma að setja upp fréttabréf og ákveða efni sem á að far í fréttabréf eða tilkynningu sem ætluð er viðskiptavinum. Einnig getur verið æskilegt að búa til nokkur fréttabréf á sama tíma með sama þema sem þó fara út á mismunandi tíma. Hér koma Emstrur og Drupal til móts við þínar þarfir þar sem hægt er að setja upp mörg fréttabréf og ákveða sendingardag fram í tímann.

Búðu til mismunandi hópa eftir tengslum og hlutverkum

Stundum viltu senda sumum eða útvöldum viðskiptavinum sérstakar tilkynningar. T.d. góðum viðskiptavinum upplýsingar um aukaafslátt rétt áður en útsala hefst. Þá er auðvelt að búa til sérstakan hóp sem þú notar síðan til að senda sérstakt fréttabréf eða sérstaka tilkynningu. Vertu í samskiptum við viðskiptavinina.

Notaðu fréttabréfið til að senda mikilvæg skilaboð eða tilboð með stuttum fyrirvara á fjölda einstaklinga

Notaðu fréttabréf til að koma skilaboðum á framfæri