Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
-
28. janúar 2012
Ný vefsíða fyrir Á. Guðmundsson
Núna í janúar settu Emstrur upp nýja vefsíðu fyrir húsgagnaframleiðandann Á. Guðmundsson. Vefsíðan var hönnuð og skipulögð af Stephen Fairbairn grafískum hönnuði. Með góðum undirbúningi hefur tekist að setja upp síðu sem auðveldar til muna aðgengi að öllu því úrvali húsganga sem Á. Guðmundsson hefur uppá að bjóða. Með öflugri skipulagningu og vinnslu gagna í aðdraganda uppsetningar sýnir vefsíðan núna ekki aðeins úrval vöruflokka heldur einnig þann margbreytileika efna og stærða sem völ er á.
-
31. Dec 2011
Ný vefsíða Þjóðskjalasafnsins frá Emstrum
Emstrur hafa nýlega lokið við uppsetningu á nýjum vef fyrir Þjóðskjalasafn Íslands. Um er að ræða yfirgripsmikinn upplýsingavef fyrir stofnun sem þjónar fjölmörgum stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum í íslensku samfélagi. Eins og aðrar vefsíður frá Emstrum vefsíðugerð er vefurinn settur upp í Drupal vefumsjónarkerfinu.
-
31. Dec 2011
Vefsíðugerð í Drupal sækir hratt fram og eru vefsíðurnar nú komnar yfir milljón að tölu
Í dag eru vefsíður sem eru settar upp í Drupal opna hugbúnaðinum orðnar yfir ein milljón. Um er að ræða vefsíður af öllum stærðum og gerðum. Allt frá einföldum persónulegum vefsíðum einstaklinga yfir í stærstu og umfangsmestu vefsíður heims á vegum þekktra stofnana og fyrirtækja. Allt frá einföldum textasíðum yfir í yfirgripsmiklar samskipta- og fjölmiðlasíður.
-
31. Dec 2011
Heimasíða Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings og rithöfundar
Núna í vikunni opnaði Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og rithöfundur heimasíðu, gudnith.is. Heimasíðan var sett upp og unnin af mínu fyrirtæki, Emstrum vefsíðugerð. Samstarfið við Guðna var sérlega ánægjulegt og áhugavert fyrir mig. Nýlega hafði ég lokið við að lesa bókina um Gunnar Thoroddsen þegar Guðni kom til mín með erindi sitt.
- 1 of 4
- ››
Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi
