Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

FERÐAÞJÓNUSTA

Vefsíður með bókunarkerfi fyrir margs konar ferðaþjónustu - skoða nánar

Kostnaður við vefsíðu – ekki gleyma að reikna til enda!

Kostnaður við uppsetningu - ekki falla fyrir földum gjöldum

Þegar þú tekur ákvörðun um uppsetningu á vefsíðu er kostnaður eðlilega mikilvægur þáttur. Það er að segja verðið sem þú greiðir fyrir vefsíðuna. Þessum kostnaði má skipta í tvennt. Annars vegar uppsetningu og frágang vefsíðunnar út á netið og hins vegar kostnaður sem fellur á vefsíðuna eftir að hún er komin út á netið. Það er mjög mikilvægt að þú gerir þér glöggva grein fyrir báðum þessum kostnaðarþáttum. Það getur sparað töluverða fjármuni til lengri tíma að bera saman uppsetningu án mánaðargjalds og uppsetningu með mánaðargjaldi. Þ.e.a.s. mánaðargjald fyrir leigu á hugbúnaði sem keyrir vefsíðuna. Mánaðargjald sem er óháð hýsingu. Þannig getur vefsíða sem kostar kr. 130.000 í uppsetningu án mánaðargjalds verið mun ódýrari en vefsíða sem kostar t.d. kr. 69.000 í uppsetningu og kr. 5.200 á mánuði til viðbótar. Eftir 4 ár kostar vefsíðan sem upphaflega kostaði kr. 130.000 ennþá kr. 130.000. Vefsíða sem kostaði kr. 69.000 í uppsetningu og kr. 5.200 í mánaðargjald er hins vegar komni í kr. 318.600.

Innihald, útbreiðsla og viðbætur

Þú þarft líka að vera viss um að vefsíðan sem þú greiðir fyrir geri það sem hún á að gera. Að frágangur sé faglegur og standist prófanir. Að vefsíðan sé áhugaverð fyrir leitarvélar. Að þú getir séð alveg um vefsíðuna án utanaðkomandi aðstoðar. Að endurnýjun í framtíðinni byggi á sama grunni. Að þú getir stækkað vefsíðuna án þess að þurfa að skipta henni út fyrir nýja. T.d. bætt við verslunarkerfi, póstlistakerfi, öðru tungumáli eða fréttabréfum svo dæmi séu nefnd.

Ekki gleyma að taka tillit til mánaðargjalds í útreikningum á verði við uppsetningu og frágang vefsíðu þegar þú ferð út í heimasíðugerð