Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

EINSTAKLINGAR

Þú stjórnar vefsíðu sem kemur þér á framfæri. Skiptir um texta og myndir.

Skoðanakannanir

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Ein leið til að gera vefsíðuna skemmtilega og jafnframt gagnlega er að setja upp skoðanakannanir. Með skoðanakönnunum er hægt að kanna hugi fólks til margs konar hluta tengdum félögum, áhugamálum, fyrirtækjum eða daglegu lífi. Skemmtileg skoðanakönnun getur líka örvað heimsóknir og þar með framgang vefsíðunnar á netinu. Í dálkinum hérna til vinstri getur þú séð dæmigerða uppsetningu á skoðanakönnun.

Hvað er hægt að spyrja um?

Allt milli himins og jarðar. Til dæmis geta fyrirtæki gert tímabundna könnun á afstöðu viðskiptavina til hinna ýmsu vörutegunda, vöruflokka eða einstakrar vöru sem verið er að kynna. Félög geta athugað áhuga á að fara í ferð eða hvar eigi að halda árshátíð. Einstaklingar geta spurt hvernig þeir eigi að far klæddir á næsta djamm. Hérna erum við t.d. að spyrja hvort þú viljir vefsíðu án mánaðargjalds eða hvort þú hafir áhuga á vefsíðu þar sem á þér liggja þær kvaðir að greiða mánaðrgjald fyrir að nota hugbúnaðainn sem stýrir vefsíðunni.

Margir valkostir þegar kemur að skoðanakönnunum

Vefstjórinn stjórnar skoðanakönnunum með vefumsjónarkerfinu. Þegar hann hefur ákveðið um hvað á að spyrja setur hann upp valkosti. Valkostirnir geta verið tveir, þrír, fjórir eða fleiri eftir því um hvað er verið að spyrja. Því næst ákveður hann hversu lengi á að láta skoðanakönnunina lifa. T.d. hversu marga daga. Einnig er hægt að stilla hverjir hafi rétt til að taka þátt. Eins og margt annað í Drupal kerfinu þá er hægt að stjórn skoðanakönnunum með margs konar stillingum á öðrum stöðum. Þannig er t.d. hægt að stilla atkvæðagreiðsluna þannig að sá sem greiðir atkbæði geti breytt um skoðun eða að hann geti ekki breytt um skoðun.

Atkvæðagreiðslan

Þegar gestir koma inn á síðuna er reynt að hafa skoðanakönnunina þannig að hún blasi við. Þeir sem vilja geta síðan smellt við þá skoðun sem þeir hafa á tilteknu málefni. Þegar atkvæðagreiðslu er lokið koma niðurstöður fram. Á prufusíðu okkar fyrir Drupal er hægt að skoða uppsetningu skoðanakannana nánar.

Skoðanakannair eru skemmtileg leið til að kanna hugi fólks og til að lífga upp á vefsíðuna þína.

Emstrur vefsíðugerð innri vefur