Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

FERÐAÞJÓNUSTA

Vefsíður með bókunarkerfi fyrir margs konar ferðaþjónustu - skoða nánar

Tvö eða fleiri tungumál

Er hægt að hafa fleiri en eitt tungumál á sömu vefsíðu?

Fyrir þá sem þurfa að koma upplýsingum á framfæri á fleiri en einu tungumáli er Drupal bæði einfalt og lipurt. Með Drupal vefumsjónarkerfinu er hægt að hafa hluta efnisins á öðru tungumáli og einnig er hægt að spegla síðuna í heild sinni. Ef þú þarft að setja efnið inn á ensku til viðbótar við íslensku setjum við hnapp á innsetningarformið sem leyfir þér að velja á hvaða tungumáli efnisinnsetningin er. Þegar tungumálið er valið fer efnið inn á þann hluta vefsíðunnar sem tilheyrir því tungumáli. Skiptir þá einu hvort um er að ræða fréttir, nýja síðu, nýjan tengil eða nýjan atburð af einu eða öðru tagi.

Hvernig er skipt yfir í annað tungumál?

Í haus vefsíðunnar setjum við fána eða texta þar sem auðvelt er að skipta frá einu tungumáli yfir í annað. Til dæmis breska fánann þegar skipta á yfir í ensku. Þá er farið yfir á enskan hluta. Þessi uppsetning er algerlega óháð stærð síðunnar og er auðvelt að setja upp fyrir litlar og stórar síður. Augljóslega er þessi uppsetning og frágangur hentugur fyrir fyrirtæki í ferðaiðnaði eins og ferðaþjónustu og útleigu íbúða. Einnig fyrir söfn og aðra þá aðila sem þurfa að kynna starfsemina og þjónustuna á fleiru en einu tungumáli.

Gera mörg tungumál efnisinnsetninguna flóknari?

Ef þú ert með vefsíðu sem þarfnast tveggja eða fleiri tungumála þar sem auðvelt er að uppfæra hvert tungumál fyrir sig þá er Drupal vefsíða og vefumsjónarkerfi sérlega heppilegt. Þar er hægt að skipta yfir í annað eða þriðja tungumál með einum smelli á músinni. Og það allra besta er að með tveim eða fleiri tungumálum verður innsetningin ekki flóknari.