Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Vefumsjón með Drupal – ný tegund viðskiptahátta

Drupal vefumsjónarkerfið er frjáls hugbúnaður eða„Open Source“. Þetta þýðir að þeir sem hanna kerfið og einstaka hluta þess, setja það upp og viðhalda því krefjast ekki endurgjalds eða launa. Þetta þýðir líka að kóðinn, eða forritunin sjálf, er öllum opinn til notkunar, breytinga og lagfæringa. Þetta er ný leið í viðskiptum sem hefur vaxið og dafnað í hugbúnaðargeiranum síðustu árin og á eftir að hafa mikil áhrif. Vertu með í virkri framþróun og nýjum viðskiptaháttum.
„Open Source“
Í dag er „open source“ hugbúnaður, bæði almennur hugbúnaður fyrir tölvur, eins og OpenOffice, og hugbúnaður fyrir vefsíðugerð, eins og Drupal, orðinn mjög útbreiddur. Sumir hafa gengið svo langt að tala um nýja tegund af hagkerfi sem sé að spretta upp af þessu áður óþekkta eignarhaldsfyrirkomulagi. Hvað sem öðru líður er „open source“ hugbúnaður að spara stórar fjárhæðir hjá fyrirtækjum og stofnunum hér á landi sem víða erlendis.
Drupal hugbúnaður
Til þess að öll atriði gangi upp í Drupal hafa fjölmargir og hæfileikaríkir einstaklingar í hugbúnaðargerð lagt hönd á plóginn til margra ára. Sumir hafa smíðað, bloggkerfi eða atburðadagatöl, aðrir spjallþræði, enn aðrir grunninn sem auðveldar smíði hvers konar gagnagrunna og enn aðrir grunninn sem gerir okkur mögulegt að smíða fréttakerfið. Það sem er athyglisvert við Drupal er hin óendanlega fjölbreytni möguleika og fjöldi notenda. Í dag er fátt sem Drupal getur ekki leyst og afkastað þegar kemur að nútímalegum vefsíðum. Vefsíðum sem virka eins og litlir prívat fjölmiðlar og tæki til samskipta. Vefsíðum sem eigandinn á og stjórnar sjálfur.
Hverjir nota Drupal?
Notendur Drupal skipta nú tugum þúsunda. Allt frá stórum fyrirtækjum eins og Warner Brothers Music, MTV UK og New York Observer yfir í litlar persónulegar síður. Nýlega skipti skrifstofa forseta Bandaríkjanna yfir í Drupal, en vefsíða þeirra whitehouse.gov þurfti öflugt og afkastamikið CMS kerfi. Hér á landi má nefna notendur eins og Háskóla Íslands og Stúdentaráð Háskóla Íslands ásamt fjölda stofnana innan HÍ.
Hvers vegna að borga fyrir vefumsjónarkerfi þegar jafn góð kerfi eða betri eru ókeypis?
What is Drupal? from Larchmont Films on Vimeo.
Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi

