Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

EINSTAKLINGAR

Þú stjórnar vefsíðu sem kemur þér á framfæri. Skiptir um texta og myndir.

Vefumsjónarkerfi sem gerir þér kleift að sjá um allt efni

Emstrur vefsíðugerð - Vefumsjónarkerfi

Með vefumsjónarkerfi sem almennt á tölvumáli kallast CMS, eða „content management system“, er átt við stjórnkerfi sem fylgir vefsíðunni og gerir notandanum kleift að stjórna inntaki og uppfæra efni vefsíðunnar, efni eins og texta og myndum. Til þess að komast að stjórnkerfinu þarf vefstjórinn að skrá sig inn með lykilorði og aðgangsorði. Þegar hann er innskráður opnast nýtt leiðakerfi sem heimilar breytingar á inntaki vefsíðunnar. Þetta er jafn einfalt og að setja inn efni á Facebook

Hverju er hægt að breyta?

Vefstjóri með full réttindi getur gert allar þær breytingar sem nauðyn krefur og kerfið leyfir. T.d. getur hann sett inn nýjar síður, nýja tengla, nýja atburði í atburðadagatal, nýtt efni á allar síður og alla dálka, stjórnað bloggi, spjallrásum, fréttum og innsetningu mynda ásamt því að stýra aðgangi. Vefstjórinn ákveður einnig hvernig aðgangur er settur upp. Hver fær aðgang að hverju og hver fær leyfi til að taka þátt í spjallrásum og hver fær leyfi til að gera athugsemdir, svo dæmi séu nefnd.

Umsjón með inntaki og uppfærsla á efni

Flestir sem ætla sér að sjá um vefsíðuna sjálfir vilja hafa frelsi til að breyta texta, skrifa fréttir, breyta myndum, setja inn atburði í atburðadagatal og stýra spjallþráðum. Með Drupal vefumsjónarkerfinu er allt þetta mjög auðvelt og krefst ekki annars en venjulegrar tölvukunnáttu.

Stjórnun á stækkun og útliti

Fyrir þá sem vilja ganga lengra og hafa þann möguleika að setja upp form, bæta við tenglum, setja inn nýja efnisþætti, setja inn auglýsingar o.s.frv. þarf viðbótarþekkingu sem auðvelt er að afla sér fyrir einstaklinga með gott tölvulæsi. Ekkert sem er óyfirstíganlegt fyrir einstaklinga með góða almenna tölvuþekkingu.

Með vefumsjónarkerfinu frá Drupal getur þú gert vefsíðuna að þínum eigin fjölmiðli með margs konar möguleikum

Emstrur vefsíðugerð - vefumsjónarkerfi