Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Heimasíða Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings og rithöfundar
Núna í vikunni opnaði Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og rithöfundur heimasíðu, gudnith.is. Heimasíðan var sett upp og unnin af mínu fyrirtæki, Emstrum vefsíðugerð. Samstarfið við Guðna var sérlega ánægjulegt og áhugavert fyrir mig. Nýlega hafði ég lokið við að lesa bókina um Gunnar Thoroddsen þegar Guðni kom til mín með erindi sitt. Sem áhugamaður um stjórnmál og sögu með svolitla þekkingu á hvoru tveggja eftir nám í stjórnmálafræði fyrir mörgum árum var það var það bæði skemmtilegt og örvandi að ræða við Guðna meðan á uppsetningu vefsíðunnar stóð.
Guðni Th. Jóhannesson er að sumu leyti óvenjulegur fræðimaður. Óvenjulegur að því leyti að hann er líka frumkvöðull. Þessi tvö hlutverk fræðimaðurinn og frumkvöðullinn eru oft á tíðum á andstæðum pólum. Guðni hefur hins vegar sýnt svo um munar að þessir tveir geta auðveldlega rúmast í sama einstaklingum. Jafnvel þannig að útkoman verði áhrifamikil.
Bækur Guðna sem núna eru orðnar átta talsins eru sérlega áhugaverðar fyrir áhugafólk um samtímasögu. Sérstaklega fyrir þá sem hafa áhuga á stjórnmálasögu og hagsögu. T.d. er bókin um Gunnar Thoroddsen mjög áhugaverð fyrir þá sem vilja skilja stjórnmálasögu tuttugustu aldar. M.a. vegna þess að samhliða sögu Gunnars er Guðni að fjalla um atburði og þróun margra mála sem settu svip sinn á öldina alla. Gunnar byrjaði nefnilega snemma í stjórnmálum og ferill hans spannar nánast alla öldina. T.d. fannst mér auðvelt að lesa út úr bókinni hvernig siðmenning pólitískrar spillingar varð til á Íslandi og hvernig sérkenni þeirrar spillingar eru saman sett. Eitthvað sem Guðni var líklega ekkert sérstaklega að reyna að miðla þegar hann skrifaði bókina. En þannig er galdurinn bakvið þróttmikla sagnfræði, hún miðlar fortíðinni hlutlægt og gefur lesandanum tæki til að meta sjálfur löngu liðna atburði á nýjum forsendum og í nýju samhengi .
Á heimasíðunni er hægt að skoða feril og skrif Guðna og eru þau sett fram af þeirri nákvæmni sem vænta má af vandvirkum sagnfræðingi. Þar er einnig hægt að skrá sig inn á síðuna og taka þátt í bloggi sem líklega verður bundið við skrif og framlag Guðna til samtímans. Á heimasíðunni mun Guðni birta fréttir af ýmsu sem viðkemur samtímanum og hans skrifum, enda heimasíðan sett þannig upp í Drupal vefumsjónarkerfinu að Guðni á mjög auðvelt með að sjá alveg um hana sjálfur. Innskráðir geta síðan komið með athugsemdir á fréttirnar. Ef fólki líkar fréttin getur það deilt henni með vinum sínum á facebook og twitter eða sent vinum sínum tölvupóst um fréttina frá síðunni. Þá er auðvelt að leita að upplýsingum á síðunni sem er sérlega gagnlegt þegar efni er orðið mikið. Heimasíðan er þannig gagnvirk og verður vonandi gott tæki fyrir Guðna til að fá viðbrögð frá lesendum.
Það verður því áhugavert að fylgjast með skrifum Guðna á síðuna og sjá hvernig honum tekst að gera hana að því tæki sem heimasíða á að vera. Tæki til samskipta og miðlunar.

Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi
