Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Ný vefsíða fyrir Á. Guðmundsson
Núna í janúar settu Emstrur upp nýja vefsíðu fyrir húsgagnaframleiðandann Á. Guðmundsson. Vefsíðan var hönnuð og skipulögð af Stephen Fairbairn grafískum hönnuði. Með góðum undirbúningi hefur tekist að setja upp síðu sem auðveldar til muna aðgengi að öllu því úrvali húsganga sem Á. Guðmundsson hefur uppá að bjóða. Með öflugri skipulagningu og vinnslu gagna í aðdraganda uppsetningar sýnir vefsíðan núna ekki aðeins úrval vöruflokka heldur einnig þann margbreytileika efna og stærða sem völ er á. Vefsíða Á. Guðmundssonar er dæmi um gott samstarf fyrirtækis, hönnuðar og vefsíðufyrirtækis. Með vefsíðunni ætti Á. Guðmundsson að vera í góðri stöðu til að sækja fram, bæði hér á landi sem og á erlendum mörkuðum, eins og fyrirtækið áformar.
Á. Guðmundsson ehf. var stofnað í janúar 1956 af hjónunum Maríu Sigmundsdóttur og Ásgeiri J. Guðmundssyni húsgagnasmíðameistara að Eiríksgötu 9, Reykjavík í 40 fermetra húsnæði. Á þeim tíma hefur fyrirtækið stækkað og eflst og er núna staðsett í Bæjarlind 8–10 í Kópavogi í glæsilegu verslunar- og iðnaðarhúsnæði sem er alls 3.240 fermetrar að stærð. Þar starfa nú um 25 manns.

Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi
