Skip to Content

OPINBERIR AÐILAR

Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir.  Skoða nánar...

Hvernig virkar Drupal?

Skoðaðu video sem sýnir hvernig Drupal, öflugasta vefumsjónarkerfi heims virkar?

Félög og félagasamtök

Gagnvirkar vefsíður sem einfalda starsemi félagsins. Skoða nánar...

FERÐAÞJÓNUSTA

Vefsíður með bókunarkerfi fyrir margs konar ferðaþjónustu - skoða nánar

Ný vefsíða Þjóðskjalasafnsins frá Emstrum

Þjóðskjalasafn Íslands notar Drupal vefumsjónarkerfið

Emstrur hafa nýlega lokið við uppsetningu á nýjum vef fyrir Þjóðskjalasafn Íslands.  Um er að ræða yfirgripsmikinn upplýsingavef fyrir stofnun sem þjónar fjölmörgum stofnunum, fyrirtækjum og einstaklingum í íslensku samfélagi.  Eins og aðrar vefsíður frá Emstrum vefsíðugerð er vefurinn settur upp í Drupal vefumsjónarkerfinu. Þjóðskjalasafnið er þannig þriðja ríkisstofnunin sem velur þá leið að setja upp vefsíðu í Drupal opna hugbúnaðinum.  Áður hafa Háskóli Íslands og RÚV sett upp sínar vefsíður í Drupal, enda er Drupal bæði þægilegt í notkun og einstaklega afkastamikið kerfi.

Þjóðskjalasafn Íslands er mikilvæg stofnun í Íslensku samfélagi og þess vegna er mikilvægt að vefsíða stofnunarinnar sé öflug og afkastamikil.  Þjóðskjalasafnið er skjalasafn íslenska ríkisins og íslensku þjóðarinnar. Þar eru ekki aðeins geymd mikilvæg gögn um sögu þjóðarinnar og stjórnsýslunnar heldur og ýmiss skjöl úr einkasöfnum ásamt skjölum og gögnum fyrirtækja. Inn á vefinn koma þannig tugir heimsókna á dag.  Einstaklingar sem leita að upplýsingum um sögu þjóðarinnar í fræðilegum tilgangi eða e.t.v. af persónulegum ástæðum. 

Fyrir stofnun eins og Þjóðskjalasafnið er mikilvægt að vefsíðan byggi á traustum grunni.  Drupal vefumsjónarkerfið hentar þannig mjög vel þar sem er í stöðugri uppbyggingu og stöðugri framþróun.  Með því að velja Drupal opna hugbúnaðinn er Þjóðskjalasafnið ekki aðeins að velja hagkvæman kost heldur einnig að velja hugbúnað sem auðveldar stækkun og framtíðarskipulagningu vefsíðunnar. Emstrur óska Þjóðskjalasafninu til hamingju með nýju vefsíðuna.