Vefsíðugerð - Heimasíðugerð -  Vefsíður sem virka

Sími 552 3040

Emstrur

vefsíðugerð

Þetta gera Emstrur með þér

  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  
  •  

Emstrur vefsíðugerð Lógó Hvað felst í vefsíðugerð?

Vefsíðugerð hefst þegar þú hefur samband við Emstrur og lýkur þegar Drupal vefurinn þinn fer fullskapaður út á netið. Þá tekur þú við stjórninni. Áður en það gerist þarf að fullvinna heimasíðuna og huga að mörgum mikilvægum þáttum: Útliti, forritun, litavali, stafagerð, áferð síðunnar og myndum svo dæmi séu nefnd. Þegar þú tekur ákvörðun um að fjárfesta í vefsíðu er heppilegt að hafa yfirsýn yfir alla þessa þætti og spyrja hvernig þeir eru leystir. Þú vilt að vefsíðan skili árangri á netinu en byrji ekki líf sitt sem rafrænn steingervingur.

Emstrur vefsíðugerð Lógó Leiðarkerfið þarf að hjálpa

Leiðakerfið er mikilvægasti hluti vefsíðunnar og samanstendur af þeim tenglum sem leiða gestina að upplýsingum sem vefsíðan er að kynna. Þess vegna er mikilvægt þegar þú undirbýrð vefsíðuna og velur form hennar að allir geti auðveldlega ratað um hann, fram og til baka. Og ekki síður að þú eigir auðvelt með að stjórna þeim upplýsingum sem eru á vefsíðunni. Það gerir þú með Drupal vefumsjónarkerfinu.

Emstrur vefsíðugerð Lógó Ekki sætta þig við þunga hleðslu

Til þess að gera vefsíður léttar í hleðslu í hvaða vafra sem er þarf forritun að vera í lagi. Vefsíður í dag þurfa að skilja og birtast fljótt í Explorer, Firefox, Opera, Safari og öllum helstu vöfrum. Til þess að árangur náist þarf HTML kóðinn að vera í lagi og útlitið að styðjast við CSS. Kóðinn er kóngur í vefsíðugerð. Þetta skiljum við hjá Emstrum og þetta skilur Drupal. Með Emstrum og Drupal ert þú í góðum höndum.