Vefsíðugerð - Heimasíðugerð -  Vefsíður sem virka

Sími 552 3040

Emstrur

vefsíðugerð

Vantar þig vefsíðu fyrir starfsemi eins og:

  • Glaða einstaklinga
  • Njólaræktun
  • Algjöra fálka
  • Bond áhugafólk
  • Falinn fjársjóð
  • Rigningu
  • Fjúkandi fossa
  • Dularfulla vita
  • Gulleita Máva
  • Sálfræði hraða
  • Veiðifíkn
  • Endalok vatnsins
  • Draugaleg hús í sveit
  • Karla með hjálma
  • Björgunarhringi
  • Fatnað með hettur
  • Kaffibolla með rönd
  • Fuglastofn í vexti
  • Útlensk húsþök
  • Sparneytna bíla
  • Steina sem tala

Emstrur vefsíðugerð Lógó Verslun í botni Hvalfjarðar?

Í dag er heimasíðan óaðskiljanlegur hluti markaðssetningar. Og til að hún nýtist sem markaðssetningartæki þarf að vera auðvelt að finna hana. Að setja upp illa skipulagða heimasíðu er jafn skynsamlegt og að setja upp verslun í botni Hvalfjarðar. Staðsetning er nefnilega líka lykilatriði í netheimum. Heimasíðan þarf að segja leitarvélum hvernig fólk á að finna hana. Hún þarf að skilgreina fyrir gestum netheima hvað hún hefur fram að færa og hverjir hafa þörf fyrir að sjá hana. Með því að setja vefsíðuna upp með faglegum hætti og fylgja stöðlum margfaldast möguleikar hennar á netinu. Emstrur og Drupal vinna með þér og aðstoða þig við að staðsetja þig rétt á veraldarvefnum.

Kanntu að færa vörurnar þínar frá lagernum fram í búð?

Lykilatriði í markaðssetningu á netinu er upplýsingar. Margir eyða of miklum fjármunum í að setja upp „dauðar“ vefsíður sem þeir hafa þar að auki litla eða enga möguleika á að stjórna sjálfir. Geta ekki sett inn nýtt efni eða myndir og geta ekki breytt efni vefsíðunnar á neinn hátt. Þetta er eins og að vera með verslun þar sem enginn kann að færa vörurnar af lagernum fram í búð nema einstaklingur frá öðru fyrirtæki. Einstaklingur frá fyrirtæki sem fær mánaðarlega greiðslu en kemur þegar honum hentar. Við slíkar aðstæður eru orðinn „fangi“ annarra og öðrum háður. Emstrur og Drupal skila vefsíðu með vefumsjónarkerfi sem opnar þér nýja möguleika til að stjórna þínu eigin upplýsingaflæði. Þú setur vörurnar fram í búð og líka á vefsíðuna þegar þér hentar og þar að auki án mánaðargjalds eða aukaskostnaðar.