Ekki gera eitthvað Ekki gleyma leitarvélum eins og Google, bing og Yahoo þegar þú skipuleggur heimasíðuna. Stilling fyrir leitarvélar þarf að hefjast á fyrstu stigum vefsíðugerðar og er fléttast saman við forritun, útlit og leiðakerfi þannig að útkoman verði vefsíða með mikla möguleika á netinu. Stilling fyrir leitarvélar er atriði sem erfitt er að stilla fyrir gamlar vefsíður og sérstaklega vefsíður sem eru gerðar í Flash eingöngu. Ef þú vilt að vefsíðan þín sé samkeppnishæf á netinu þarftu að stilla hann við hönnun og „uppsetningu“.
Allt þarf að virkaTil að allt virki þarf kóðinn og CSS stýringin að vera þannig að leitarvélarnar skilji vefinn. Að ekki sé allt morandi í villum og hindrunum þegar leitarvélin fer yfir vefinn. Þá er einnig mikilvægt að nota leiðakerfi sem leitarvélar skilja og orðaforða sem myndar samræmi. Hafir þú áhuga á að setja upp vefsíðu sem á að ná langt á veraldarvefnum settu þá upp vefsíðu með vönduðum kóða og einföldu CSS stílsniði.
Árangur vefsíðu er ekki tilviljunAllar vefsíður frá Emstrum eru settar upp í HTML og CSS og eru því sérlega leitarvélavænar. Frá Emstrum koma vefsíður með hið eina sanna heilbrigðisvottorð: Vottun frá W3C.org. Eftir uppsetningu fylgjum við uppsetningu eftir með upplýsingum sem við sendum á leitarvélar enda er árangur vefsíðu á netinu ekki háð tilviljunum.