Vefsíðugerð - Heimasíðugerð -  Vefsíður sem virka

Sími 552 3040

Emstrur

vefsíðugerð

Vefsíður frá Emstrum

  • Sigtryggur Bjarni
  • Sossa listmálari
  • Erna Einarsdóttir fashion designer
    Erna fatahönnuður
  • Fasteign
  • Ferðaþjónusta
  • Northwear
  • Fasteignaviðgerðir
  • Minjasafn
  • Humarskipið
  • Parket og gólf
  • Lýtalæknar
  • Ice Events
  • Sigurjón Jóhannsson
  • Gegga
    Gegga
  • Heimasíðugerð fyrir Öldu Ármanna listmálar
    ISCFT
  • Arctic designs
    Arctic
  • Félag símamanna
    Félag símamana
  • Food and fun

Emstrur vefsíðugerð Lógó Vefumsjónarkerfi

Með vefumsjónarkerfi sem almennt á tölvumáli kallast CMS, eða „content management system“, er átt við stjórnkerfi sem fylgir vefsíðunni og gerir notandanum kleift að stjórna inntaki vefsíðunnar. Til þess að komast að stjórnkerfinu þarf vefstjórinn að skrá sig inn með lykilorði og aðgangsorði. Þegar hann er innskráður opnast nýtt leiðakerfi sem heimilar breytingar á inntaki vefsíðunnar.

Emstrur vefsíðugerð Lógó Hverju er hægt að breyta?

Vefstjóri með full réttindi getur gert allar þær breytingar sem kerfið leyfir. T.d. getur hann stjórnað bloggi, spjallrásum, fréttum og innsetningu mynda ásamt því að stýra aðgangi. Vefstjórinn ákveður einnig hvernig aðgangur er settur upp. Hver fær aðgang að hverju og hver fær leyfi til að taka þátt spjallrásum og hver fær leyfi til að gera athugsemdir, svo dæmi séu nefnd.

Emstrur vefsíðugerð Lógó Umsjón með inntaki

Flestir sem ætla sér að sjá um vefsíðuna sjálfir vilja hafa frelsi til að breyta texta, skrifa fréttir, breyta myndum, setja inn atburði í atburðadagatal og stýra spjallþráðum. Með Drupal vefumsjónarkerfinu er allt þetta mjög auðvelt og krefst ekki annars en venjulegrar tölvukunnáttu.

Emstrur vefsíðugerð Lógó Stjórnun á stækkun og útliti

Fyrir þá sem vilja ganga lengra og vilja hafa þann möguleika að setja inn nýjar síður, setja upp form, bæta við tenglum, setja inn nýja efnisþætti o.s.frv. þarf viðbótarþekkingu sem auðvelt er að afla sér fyrir einstaklinga með gott tölvulæsi. Ekkert sem er óyfirstíganlegt fyrir einstaklinga með góða almenna tölvuþekkingu.