Vefsíðugerð - Heimasíðugerð -  Vefsíður sem virka

Sími 552 3040

Emstrur

vefsíðugerð

Vefsíður frá Emstrum

  • Sigtryggur Bjarni
  • Sossa listmálari
  • Erna Einarsdóttir fashion designer
    Erna fatahönnuður
  • Fasteign
  • Ferðaþjónusta
  • Northwear
  • Fasteignaviðgerðir
  • Minjasafn
  • Humarskipið
  • Parket og gólf
  • Lýtalæknar
  • Ice Events
  • Sigurjón Jóhannsson
  • Gegga
    Gegga
  • Heimasíðugerð fyrir Öldu Ármanna listmálar
    ISCFT
  • Arctic designs
    Arctic
  • Félag símamanna
    Félag símamana
  • Food and fun

Emstrur vefsíðugerð Lógó Frjáls hugbúnaður

Drupal vefumsjónarkerfið er „Open Source“ eða frjáls hugbúnaður. Þetta þýðir að þeir sem smíða kerfið, setja það upp og viðhalda því krefjast ekki endurgjalds eða launa. Þetta þýðir líka að kóðinn, eða forritunin sjálf, er öllum opinn til notkunar, breytinga og lagfæringa.

Emstrur vefsíðugerð Lógó „Open Source“

Í dag er „open source“ hugbúnaður, bæði almennur hugbúnaður fyrir tölvur, eins og OpenOffice, og hugbúnaður fyrir vefsíðugerð, eins og Drupal, orðinn mjög útbreiddur. Sumir hafa gengið svo langt að tala um nýja tegund af hagkerfi sem sé að spretta upp af þessu áður óþekkta eignarhaldsfyrirkomulagi. Hvað sem öðru líður er „open source“ hugbúnaður að spara stórar fjárhæðir hjá fyrirtækjum og stofnunum hér á landi sem víða erlendis.

Emstrur vefsíðugerð Lógó Drupal hugbúnaður

Til þess að öll atriði gangi upp í Drupal hafa fjölmargir lagt hönd á plóginn til margra ára. Sumir hafa smíðað dagatöl, aðrir spjallþræði, enn aðrir grunninn sem smíðar fréttakerfið o.s.frv. Það sem er athyglisvert við Drupal er hin óendanlega fjölbreytni möguleika og fjöldi notenda.

Emstrur vefsíðugerð Lógó Notendur Drupal

Notendur Drupal skipta nú tugum þúsunda. Allt frá stórum fyrirtækjum eins og Warner Brothers Music, MTV UK og New York Observer yfir í litlar persónulegar síður. Nýlega skipti skrifstofa forseta Bandaríkjanna yfir í Drupal, en vefsíða þeirra whitehouse.gov þurfti öflugt og afkastamikið CMS kerfi. Hér á landi má nefna notendur eins og Háskóla Íslands og Stúdentaráð Háskóla Íslands ásamt fjölda stofnana innan HÍ.