SpjallþræðirUppsetning og notkun spjallþráða er góð leið til þess að viðhalda áhuga og umræðu í félögum og fyrirtækjum. Spjallþræðir eru ólíkir Bloggi að því leyti að þátttakendur með skilgreind réttindi geta stofnað spjallþráð eða geta gert athugasemdir við spjallþræði.
Auðvelt að setja reglur Með Drupal er auðvelt er að setja reglur um að hver má segja hvað, hver hefur aðgang að hverju og hver getur lesið og hver getur tjáð sig. Þessi réttindi eru veitt með skilgreiningu vefstjóra og umsjónarmanni spjallþráðanna. T.d. getur spjallrásin verið lokuð eða opin, hálf opin eða alveg lokuð fyrir ákveðna hópa.
Lokað spjallSpjallþræðir gera einstaklingum kleyft að tala saman á vefnum um mikilvæg málefni félaga og fyrirtækja án þess að það komi fyrir augu allra. Þetta getur oft verið afar gagnlegt þegar taka þarf á viðkvæmum málum í lokuðum hópi. Innri málefni félaga eða fyrirtækja svo dæmi séu nefnd.
Spjallþræðir og vefsíðurÞar sem spjallþræðir (forum) hafa þá náttúru í netheimum að kalla fólk til sín aftur og aftur eru þeir kjörin leið til að viðhalda heimsóknum á vefsíðuna. Fólk fer inn á spjallþræði vegna áhuga á þeim málefnum sem fjallað er um. Ef spjallþræðirnir eru áhugaverðir og athugasemdirnar upplífgandi er líklegt að fólk vilja koma aftur þegar eitthvað krassandi er í gangi til þess að fylgjast með framvindunni. Ef að Jökull segir að kreppan sé fín en Bína gerir þá athugasemd að hún sé niðurdrepandi djöfull, er líklegt að áhugi vakni á spjallþræðinum. Ef þú ert á Facebook af þrótti og krafti er betra að beina allri þeirri vinnu að þínum eigin spjallþræði á þinni eigin vefsíðu og nota fésið til að auglýsa það sem þar er í gangi fremur ern að púla endalaust á vefsíðu í annarra eigu. Ekki vinna fyrir aðra heldur beina ávöxtum erfiðisins í þinn eigin vasa.