Vefsíðugerð - Heimasíðugerð -  Vefsíður sem virka

Sími 552 3040

Emstrur

vefsíðugerð

Vefsíður frá Emstrum

  • Sigtryggur Bjarni
  • Sossa listmálari
  • Erna Einarsdóttir fashion designer
    Erna fatahönnuður
  • Fasteign
  • Ferðaþjónusta
  • Northwear
  • Fasteignaviðgerðir
  • Minjasafn
  • Humarskipið
  • Parket og gólf
  • Lýtalæknar
  • Ice Events
  • Sigurjón Jóhannsson
  • Gegga
    Gegga
  • Heimasíðugerð fyrir Öldu Ármanna listmálar
    ISCFT
  • Arctic designs
    Arctic
  • Félag símamanna
    Félag símamana
  • Food and fun

Emstrur vefsíðugerð Lógó Póstlistar til viðskiptavina

Eitt öflugasta tæki netsins fyrir viðskipti og verslanir eru póstlistar. Að sumu leyti njóta póstlistar og póstsendingar eins og stuttar tilkynningar og fréttabréf ekki sannmælis þar sem misnotkun (spam) í netheimum hefur verið yfirþyrmandi á köflum. Póstlistakerfið sem Emstrur setja upp í hefur hins vegar marga kosti og áhugaverðan sveigjanleika. Það er notendavænt bæði með tilliti til notenda og þeirra sem fá póstsendingar gegnum kerfið.

Emstrur vefsíðugerð Lógó Notandinn er samþykkur

Það sem er þægilegt við póstlista/fréttabréfakerfið frá Emstrum og Drupal er að póstlistinn byggir á samþykki þeirra sem fá póstinn. Til að byrja með verða þeir sem eru á listanum að að samþykkja að vera með. Þeir gerast áskrifendur. Eftir það er leið póstlistans inn á þeirra heimilisfang á netinu greiðfær. Þangað er hægt að senda fréttabréf og aðrar upplýsingar eins og tilboð og útsölur án fyrirstöðu. .

Emstrur vefsíðugerð Lógó Notandinn getur hætt

Leiðist viðtakandanum pósturinn eða missir áhugann á því sem þú eða eigandi póstlistans er auðvelt fyrir hann að skrá sig af listanum. Hann getur hætt hvenær sem er. Valdið er hjá honum en ekki þér og þess vegna þarft þú að vera með skemmtileg og áhugaverð fréttabréf til að hann vilji vera áfram. Þetta er eðlilegur samskiptamáti á netinu í dag og gerir póstlistann mun verðmætari fyrir þig fyrir vikið.