Opinn hugbúnaður fyrir sveitarfélög og opinberar stofnanir. Skoða nánar...
Opinberar stofnanir og sveitarfélög
Drupal fer saman við kröfuna um sparnað
Í dag er krafan um sparnað og hagkvæmni áberandi þegar kemur að útgjöldum ríkis og sveitarfélaga. Á öllum sviðum þarf að finna leiðir til að lækka reksturskostnað opinberra aðila. Þetta á ekki aðeins við hér á landi heldur einnig í öllum nágrannaríkjum okkar. Þess vegna hefur opinn hugbúnaður eins og Drupal orðið mun meira áberandi og útbreiddari þegar kemur að veflausnum . Hugbúnaður sem er ókeypis, auðveldur í notkun og er þar að auki uppfærður reglulega. Drupal verður þar af leiðandi æ oftar fyrir valinu þegar verið er að velja hugbúnað fyrir stofnanir og sveitarfélög.
Hvers vegna valdi Háskóli Íslands Drupal?
Á UT vefnum, vefsíðu um upplýsingatækni, er að finna frásögn vefstjóra Háskóla Ísalands af því þegar Drupal kerfið var valið fyrir skólann. Þar segir m.a. „Eftir langt og mikið könnunarferli þar sem farið var yfir vel á annan tug vefkerfa þá voru tvö kerfi eftir. Drupal og Eplica frá Hugsmiðjunni. Það sem réði ákvörðuninni var ekki munur á milli kerfanna, þau voru metin mjög áþekk að gæðum heldur var tekin ákvörðun um að HÍ þyrfti að vera fært um að stjórna alfarið sjálfur hvernig og í hvað kerfið yrði notað. Við vildum sem sagt vera sjálfum okkur nóg og einráð um hvað yrði gert og hvernig.“ Það sem var ofaná var þörfin fyrir að vera engum háður og vera sinn eigin herra þegar koma að stjórnun vefsíðunnar.
Auðveldar vinnu og möguleika vefstjórans
Margar ríkisstofnanir og mörg sveitarfélög hafa starfsfólk sem starfar við vefumsjón að hluta eða jafnvel í fullu starfi og sér þar af leiðandi alveg um vefsíðuna. Fólk sem sér um að uppfæra upplýsingar, setja inn nýtt efni, brydda upp á nýungum, setja inn myndir, skipuleggja gögn sem hægt er að sækja á vefsíðuna og þannig mætti lengi telja. Fólk sem vinnur við að koma upplýsingum á framfæri til þess að auka skilvirkni og gagnsæi stofnana. Gera verður þá lágmarkskröfu til kerfisins að það sé auðvelt í notkun og tjaldi einfaldleika og afkastagetu hvort sem um er að ræða textainnsetningu, skipulag á gögnum eða innsetningu á myndum og video. Með Drupal vefumsjónarkerfinu eru möguleikar vefstjórans til að ná fullu valdi yfir öllum þáttum vefsíðunnar ekki aðeins miklir heldur einnig auðveldir.
Nú þegar starfa tugir einstaklinga við innsetningu í Drupal hér á landi
Útbreiðsla Drupal vefumsjónarkerfisins gerir það að verkum að stöðugt fleiri einstaklingar starfa við efnisinnsetningu í Drupal opna vefumsjónarkerfinu. Sem dæmi má nefna að nokkrir tugir einstaklinga starfa við innsetningu efnis í hinum ýmsu deildum Háskóla Íslands. Um þessar mundir vinna Emstrur vefsíðugerð með ríkisstofnun og nokkrum sveitarfélögum að uppsetningu á nýjum vefsíðum í Drupal vefumsjónarkerfinu. Vefsíðum sem er ætlað yfirgripsmikið hlutver í að miðla og hafa samskipti við almenning. Möguleikarnir eru miklir í framsetningu efnis og ekki síst í rekstrarsparnaði.
Innri vefur
Rafræn form
Atburðadagatal
Fréttakerfi
Gestabók
Skjalavistun
Sérlausnir
Bloggkerfi
